Af innanlandsflugi, krúttum og englum

Ég og krúttmúsin skruppum til Akureyrar um helgina og flugum báðar leiðir.

Á leiðinni norður var svolítil ókyrrð áður en við lentum og maður bæði fann og sá hvernig margir farþeganna stífnuðu og stressuðust. Þá varð mér hugsað til þess þegar ég flaug einu sinni til Egilsstaða og það var lítil stelpa í vélinni sem að hló svo hjartanlega í hvert skipti sem flugvélin hoppaði að eftir smástund voru nær allir í vélinni skælbrosandi og enginn stressaður yfir smá ókyrrð.

Á leiðinni heim svaf krúttmúsin mín vært í stólnum sínum og í sætaröðinni við hliðin á okkur var annað krútt, 5 ára sem að fannst ekkert mál að fara einn í flugvél. Hann var greinilega alvanur og kippti sér ekkert upp við það að flugfreyjan gat ekki sinnt honum strax, spurði mig bara hvar sæti númer fjörtíu væri, en hann var í sæti 14 DWink Svo bað hann mig um að spenna á sig beltið og vissi sko vel að það þyrfti að herða vel- fylgdist meira að segja vel með því að ég gerði þetta rétt þegar að ég spennti mig! Þegar við vorum svo komin í loftið  og hætt að sjá landið fyrir skýjum spurði hann mig hvort að ég sæi einhverja engla í skýjunum. Ég leit út um gluggann og sagðist nú ekki sjá neina í augnablikinu. Þá svaraði hann spekingslega að hann hefði sko heyrt að þeir væru ósýnilegir og þess vegna sæi ég þá ekki!

Finnst ykkur ekki að það ætti að vera einn flugþjónn og svo eitt svona krútt í öllum innanlandsflugum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugmynd handa FÍ til að gera flugið skemmtilegra (ef það er þá hægt)

JMS (IP-tala skráð) 17.10.2011 kl. 22:14

2 identicon

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 18.10.2011 kl. 17:48

3 identicon

Jú algjörlega! Þetta minnir mig á þegar ég var að fljúga heim frá Danmörku hérna um árið og það sátu tveir bræður fyrir aftan mig. Sá yngri var örugglega um 5 ára aldurinn og sat spenntur í gluggasætinu og horfði einbeittur út um gluggann á öll skýin.Tilkynnti svo eldri bróðir sínum að hann væri að reyna að sjá ömmu!

Yndislegt bara. 

Sigga litla systir (IP-tala skráð) 20.10.2011 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

BulluKolla

Skoðanir og sögur í hversdagslífinu.

Höfundur

Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir
Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir

230 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • vika17 030
  • vika17 029
  • vika17 017
  • vika17 016
  • vika15og16 174

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband