Möffins eða bollakökur?

Það hefur sennilega ekki fram hjá neinum að möffins er í tísku um þessar mundir. Möffins hafa reyndar fengið nýtt íslenskt nafn: bollakökur. Ég verð að viðurkenna fáfræði mína og veit ekki upp á hár í hverju munurinn felst. Ég sé samt ekki betur en að hann felist aðallega í því hvort það er fallegt krem ofan á eða ekki og finnst það nú harla lítill munur. Því mun ég áfram kalla möffins möffins en ekki bollakökur. (Það verður þó að viðurkennast að orðið bollakökur (e. cup cakes) er mun íslenskara, nýyrði en ekki tökuorð eins og "möffins er (e. muffins), kannski að ég verði að skoða þetta mál betur.....).

En hvað sem öllum möffinsum og bollakökum líður þá fékk ég allskonar fínerí því tengt í afmælisgjöf þannig að núna get ég sko æft mig í að baka!

Um daginn afrekaði ég að gera fyrstu tilraun:

vika17 016

svona litu þær út þegar þær komu ilmandi úr ofninum (ansi venjulegt deig en bætti maukuðum jarðarberjum í deigið sem skýrir ljósbleika litill sem að glittir í)

vika17 017

hérna má sjá krúttkökurnar komnar með rjómaosta-jarðarberja-krem og á standinn fína.

vika17 029

og auðvitað varð ég að deila þessu góðgæti með einhverjum og mamma fékk svona glaðing

vika17 030

þessi fíni kassi var utan um kökurnar sem að ég fékk í afmælisgjöf og núna hefur hann verið endurnýttur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Bollakökur eru eins og "mini" tertur, léttar í sér og yfirleitt með glassúr eða kremi.  Muffins eru þéttari í sér, oft með t.d. bláberjum eða súkkulaðibitum og jafnvel aðeins stærri.  Bollakökur eru meira spari, en muffins hversdags. 

(þessi umræða kom upp meðal mín og systra minna fyrir stuttu og þetta var niðurstaðan) ;-) ... flottar kökur hjá þér! 

Jóhanna Magnúsdóttir, 8.11.2011 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

BulluKolla

Skoðanir og sögur í hversdagslífinu.

Höfundur

Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir
Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir

235 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • vika17 030
  • vika17 029
  • vika17 017
  • vika17 016
  • vika15og16 174

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband