Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Frábært!
Ég fagna öllum framförum í sorpmálum á Íslandi, við erum ekki mjög nýjungagjörn á því sviði við Íslendingar.
Reyndar er nú þegar hægt að flokka ýmislegt og skila, t.d.
- gleri (af krukkum og flöskum),
- fernur og með því má fara umbúðapappír t.d. af morgunkorni,
- auðvitað öll dagblöðin og auglýsingabæklingarnir
- auk plastumbúða af hreinlætis- og matarvörum eins og sjampóbrúsar
- og svo bylgjupappír!
Á mínu heimili er þetta samviskusamlega flokkað og skilað til Sorpu enda erum við vön slíku frá Þýskalandinu. Ég veit hins vegar að það eru margir sem vita að það er hægt að flokka og skila þessu, en gera það þó ekki. Því fagna ég framtaki sveitastjórna sem að gera þetta hreinlega að skyldu og útvega fólki viðeigandi tunnur - það er nefnilega svo margt sem að maður kemur ekki í verk fyrr en maður virkilega þarf að gera það.
Áfram með sorpflokkun og endurvinnslu!
Kröfur um minni urðun munu umbylta sorphirðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
BulluKolla
29 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.