Laugardagur, 3. desember 2011
Allskonar sniðugt!
Á ferð um netheima rekst maður iðulega á eitthvað sniðugt og skemmtilegt....það má þó deila um hversu nauðsynlegir þessir hlutir eru!
"Feels like heaven" standur í baðið fyrir kertaljósið, bókina og vínglasið.....ahhhhh!
Ferðabar! Hentar kannski einhverjum sem að býr þröngt en vill hafa lúxusbar- getur líka verið í friði fyrir litlum fingrum......kostar ekki nema 800 evrur!
Svalasta poppvél sem að ég hef séð.....þessa þarf maður ekki að fela inni í skáp!
http://www.nostalgieimkinderzimmer.de/artikel/weihnachtsvorfreude/weihnachtsbaeckerei/D.261/
Sko, þennan köku-stimpil veeeerð ég að eignast, þvílík snilld!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 20. nóvember 2011
Gamlar gersemar
Mamma bjargaði þessum "stimplum" frá því að lenda í glatkistunni, en þeir koma frá bókaútgáfu langafa míns. Það er svolítið snúið að stimla með þeim en með smá lagni og tækni er það vel hægt. Kortin eru mjög einföld en mér finnst það hæfa þessum fallegu myndum vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 19. nóvember 2011
Bókajól!
Sem lestrarhesti og kennara er mér sérstaklega annt um að börn fái að kynnast undraheimi bókanna....nógu mikið af rannsóknum til um mikilvægi læsis (í víðum skilningi) og þar spila bækurnar og bókauppeldi stórt hlutverk. Þar sem jólin eru á næsta leiti og margir að leita að gjöfum, líka jólasveinar, þá má ég til með að benda ykkur á nokkrar bækur sem að ég rakst á. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera gæðabækur á mjög viðráðanlegu verði:
Þessi er löngu orðin sígild, þekki marga sem finnst ómissandi að lesa hana fyrir jólin!
Þessi er svo skemmtileg, mæli með þessari! Þúsund kall!
Kuggur, Málfríður og mamma hennar Málfríðar og ekki má gleyma Mosa...það eru til nokkrar smábækur í þessari seríu, kosta minna en þúsundkall!
Æðisleg stafabók fyrir bókaorma....mæli eindregið með þessari!
skondin og skemmtileg eins og Eldjárn-systkina er von og vísa

virkilega vandaðar og fallegar bækur á 700 krónur....það eru kaup ársins!
Bahaha, þessi er æði!
Yndislega falleg og vönduð bók, mæli með þessari.
Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni: Sígild og sífyndin
Þessi æðislega, frábæra, yndislega skyldulesningarbók í kilju á 1100 kr. Við erum að tala um einu barnabókina sem hefur hlotið íslensku bókmenntaverðlaunin, takk fyrir!
Og svo nokkrar fræðibækur fyrir grúskarana og framtíðar vísindamennina á www.skrudda.is
Allar bækurnar hér að ofan kosta undir 2000 krónum og er hægt að panta í netverslunum forlaganna. Ég ætla að panta nokkrar og lauma í pakka lestrarhesta og bókaorma framtíðarinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 18. nóvember 2011
Skrapp og gaman
Ég hef í þrjú ár aðeins fiktað við skrappið, safnað verkfærum og pappír smátt og smátt og hef núna ákveðið að taka þetta á næsta stig og búa mér til aðstöðu. Það er komið upp skrifborð og hillur inni í vinnuherbergi og því ekkert til fyrirstöðu að láta hendur standa fram úr ermum (tja, nema einn 4 mánaða sólargeisli!).
Það er fátt betra til þess að koma manni af stað en að fjárfesta í aaaaaðeins meira skrappdóti (það er eins og önnur áhugamál, maður á aldrei nóg!) og fyrst ég fékk smá aur í afmælisgjöf ákvað ég að splæsa í krúttlegustu föndurbúð bæjarins, Skrapp og gaman.
hrikalega sætur fiðrildamynsturgatari
þessi rosa sæti pappír og límmiðar
Það verður að segjast eins og er að það var mjög erfitt að hemja sig í allri dýrðinni!
Hérna eru svo myndir (ég þarf að æfa mig í að taka betri myndir, ég veit) af nýlegum og mjög einföldum kortum:
...og nokkur í viðbót í myndaalbúminu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. nóvember 2011
Möffins eða bollakökur?
Það hefur sennilega ekki fram hjá neinum að möffins er í tísku um þessar mundir. Möffins hafa reyndar fengið nýtt íslenskt nafn: bollakökur. Ég verð að viðurkenna fáfræði mína og veit ekki upp á hár í hverju munurinn felst. Ég sé samt ekki betur en að hann felist aðallega í því hvort það er fallegt krem ofan á eða ekki og finnst það nú harla lítill munur. Því mun ég áfram kalla möffins möffins en ekki bollakökur. (Það verður þó að viðurkennast að orðið bollakökur (e. cup cakes) er mun íslenskara, nýyrði en ekki tökuorð eins og "möffins er (e. muffins), kannski að ég verði að skoða þetta mál betur.....).
En hvað sem öllum möffinsum og bollakökum líður þá fékk ég allskonar fínerí því tengt í afmælisgjöf þannig að núna get ég sko æft mig í að baka!
Um daginn afrekaði ég að gera fyrstu tilraun:
svona litu þær út þegar þær komu ilmandi úr ofninum (ansi venjulegt deig en bætti maukuðum jarðarberjum í deigið sem skýrir ljósbleika litill sem að glittir í)
hérna má sjá krúttkökurnar komnar með rjómaosta-jarðarberja-krem og á standinn fína.
og auðvitað varð ég að deila þessu góðgæti með einhverjum og mamma fékk svona glaðing
þessi fíni kassi var utan um kökurnar sem að ég fékk í afmælisgjöf og núna hefur hann verið endurnýttur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30. október 2011
Afmælisdekur
Það er svo gaman að eiga afmæli og vera dekraður svona einn dag á ári! Þegar ég fór á fætur biðu mín eiginmaður og sonur en líka....
fallegir pakkar frá þeim og.....
og gotterí úr bakaríinu, skreytt muffins og kertaljós!
Um kvöldið var svo lasagne-teiti, svona litu kræsingarnar út (þið finnið nú alveg ilminn bara af myndinni!):
Kjöt- og grænmetislasagne, eitthvað fyrir alla! Heppin ég að finnast BÆÐI gott!
Og svo fékk ég meira af yndislegum gjöfum og kortum:
María vinkona gerði þetta fallega og snilldarlega einfalda kort, pappírinn er með upphleyptu mynstri og hún litaði bara í hluta af mynstrinu með bláum lit.....lítur út eins og þetta sé svona fallega útskorið....platar augað!
Mamma gerði þetta fallega kort með barnamynd af mér. Hún þurfti að klippa ofan af myndinni til þess að hún passaði á kortið og notaði afklippuna og mynsturgataði þessi líka fallegu laufblöð og notaði sem skraut á kortið! Önnur snilldarlega einföld og ofsalega falleg hugmynd.
Sigga vinkona gaf mér svo þennan æðislega pakka (afsakið hvað myndin er "flöt"). Skrautið á pakkanum er hálfklárað púsl og litlu pakkarnir ofan á eru bitarnir sem vantar. Ég þurfti auðvitað að klára púslið áður en ég mátti opna pakkann (greinilega of margir sem vita að ég er ekkert allt of sleip í að púsla!).
og síðast en ekki síst fékk ég þennan dekurpakka frá Kára bróður...heimatilbúinn slökunardiskur fyrir baðið, lavander bað (mér finnst lofnarblómailmur svo slakandi!) og svo nokkrir molar af himnesku konfekti úr Mosfellsbæjarbakaríi.
Þetta var sko afmælis-dekurdagur í lagi! Takk fyrir mig
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. október 2011
Af innanlandsflugi, krúttum og englum
Ég og krúttmúsin skruppum til Akureyrar um helgina og flugum báðar leiðir.
Á leiðinni norður var svolítil ókyrrð áður en við lentum og maður bæði fann og sá hvernig margir farþeganna stífnuðu og stressuðust. Þá varð mér hugsað til þess þegar ég flaug einu sinni til Egilsstaða og það var lítil stelpa í vélinni sem að hló svo hjartanlega í hvert skipti sem flugvélin hoppaði að eftir smástund voru nær allir í vélinni skælbrosandi og enginn stressaður yfir smá ókyrrð.
Á leiðinni heim svaf krúttmúsin mín vært í stólnum sínum og í sætaröðinni við hliðin á okkur var annað krútt, 5 ára sem að fannst ekkert mál að fara einn í flugvél. Hann var greinilega alvanur og kippti sér ekkert upp við það að flugfreyjan gat ekki sinnt honum strax, spurði mig bara hvar sæti númer fjörtíu væri, en hann var í sæti 14 D
Svo bað hann mig um að spenna á sig beltið og vissi sko vel að það þyrfti að herða vel- fylgdist meira að segja vel með því að ég gerði þetta rétt þegar að ég spennti mig! Þegar við vorum svo komin í loftið og hætt að sjá landið fyrir skýjum spurði hann mig hvort að ég sæi einhverja engla í skýjunum. Ég leit út um gluggann og sagðist nú ekki sjá neina í augnablikinu. Þá svaraði hann spekingslega að hann hefði sko heyrt að þeir væru ósýnilegir og þess vegna sæi ég þá ekki!
Finnst ykkur ekki að það ætti að vera einn flugþjónn og svo eitt svona krútt í öllum innanlandsflugum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 13. október 2011
Enn af búðarrápi....
Ég ætti kannsi bara að fara gera út á þetta og bjóðast til að auglýsa alls konar fyrirtæki hérna á blogginu (hef svo svakalega marga lesendur, hehe) En ég stenst ekki mátið og segi ykkur frá flottri búð sem að heitir curvy.is. Ég hef lengi ætlað að kíkja þangað og dreif mig loksins í dag og keypti heila tvo toppa - mjög sæta að mínu mati:


...keypti bara báða því ég gat ekki valið! Svo langar mig líka að skella mér á svona klút...kannski í næsta mánuði :-)

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. október 2011
af góðri þjónustu....
Fyrst að ég leyfi mér að setja hérna pistla um slæma þjónust fyrirtækja er eins gott að ég standi mig og segi frá því þegar ég fæ góða þjónustu!
Ég prófaði að panta útsölupappír frá CreativeHobby: (afsakið hvað myndirnar koma stórar!)


voða sætur og bara 90 kr. örkin (engillinn er bara vörumerki á myndinni, er ekki á pappírnum!). Fékk pappírinn heimsendann daginn eftir, enginn sendingarkostnaður og voðalega almennileg stelpan sem kom með hann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. október 2011
Svart hvítur órói
Það er þarfaþing að hafa góðan óróa fyrir ofan skiptiborðið og ég var alltaf á leiðinni að fara kaupa einn slíkan.....
Svo sá ég hjá einni sniðugri mömmu hvar hún hafði hengt allskonar lítið dót í hvert horn á ferhyrndu spjaldi og hengdi svo upp sem óróa eða dót til að slá í fyrir lilluna sína.
Ég hafði líka heyrt og lesið að ungabörn sjá best svart hvítar myndir/mynstur, sérstaklega á meðan þau eru enn að ná fullri sjón.
Og eitt kvöldið bræddi ég þessar ofureinföldu hugmyndir saman í einn ofureinfaldan svart- hvítan óróa fyrir litla gullmolann minn:
Fyrst leitaði ég að svart hvítum mynstri á veraldarvefnum og valdi fimm sem að mér fannst falleg:
skar þær út og límdi á litaðan pappír
sama myndin límd á báðu megin
þá fann ég nothæft band, í þessu tilfelli hvíta sænskættaða pakkabandsnúru frá IKEA
og batt svo herlegheitin saman í ofureinfaldan óróa
sem lítur svona út fyrir krúttið á skiptiborðinu
óróinn er ekkert festur upp, bandinu er bara tyllt undir körfuna á hillunni og þá helst hann, mjög þægilegt að geta fært hann hvert sem er, auðvelt að festa og léttur!
Litli maðurinn getur horft á þetta nánast dáleiddur tímunum saman, skríkir og hlær!
Ég er bara ansi ánægð með hann og það sem mikilvægast er....litli maðurinn er sko hæst ángæður með hann!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
BulluKolla
330 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 48571
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar











