Það byrjað á því að ég fór til læknis. Er með einkennilega kúlu inni í lófanum sem fer ekki og kominn tími til að láta líta á það. Læknirinn heldur að þetta sé "Ganglion" (já, gúgliði það bara....) en til þess að staðfesta það þarf að kíkja inn í lófann á mér með hjálp tækninnar; hendin á mér þarf að fara í sónar!
Mér fannst þetta svo skondið og var að segja samstarfskonu minni frá þessu. Hún benti mér á hversu frábærlega tvírætt þetta var og síðastliðinn sólarhringinn hef ég notað ég-er-að-fara-í-sónar-brandarann mikið....
Ein samstafskona mína æpti yfir sig að gleði þegar ég sagði henni "fréttirnar"- en hún er einmitt alltaf að spyrja mig hvenær ég fari nú að koma með eitt lítið.
Svo skellti ég þessu auðvitað á fésbókina- aðallega í kaldhæðni, ég meina, það hefur nú verið tilkynnt um hjónaskilnaði og andlát þar inni! Svörunin stóð ekki á sér; fimm mínútum seinna hringdi Sigga vinkona alveg brjáluð í mig, hvað það ætti eiginlega að þýða að segja henni fréttirnar á fésbókinni!!!!
Guðbjartur bróðir í Kanada óskaði mér til hamingju og spurði hvað ég væri kominn margar vikur á leið....og varð svolítið súr þegar ég sagði honum að kúlan væri í lófanum.....En hann fyrirgaf mér þegar ég sagði honum að ef ég yrði einhverni tímann ólétt myndi ég nú segja honum það í eigin persónu, hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að frétta það svona!
Og fyndnast af öllu: Í dag þurfti ég að tala við yfirmann minn til þess að frá frí og mæta í handasónarinn. Ég kunni ekki við að stríða henni svona og bið um frí til þess að fara í sónar á hendi, en það skipti engu máli, hún brosti sínu blíðasta og ætlaði að fara óska mér til hamingju þegar ég endurtek; "á hendi, á hendinni" og bendi meira að segja á hendina....þá fattaði hún loksins!
María vinkona plataði mig á þessa mynd með sér núna í vikunni. Ég verð að viðurkenna að í fyrstu var ég ekki alveg viss um þetta, ég meina, franskar myndir eru yfirleitt í meira lagi skrýtnar. En þessi er alveg frábær, hrikalega fyndin og dásamlega yndisleg. Það er langt síðan ég hef grenjað að hlátri í bíó, í orðsins fyllstu merkingu! Og ég fullyrði að hún sé við allra hæfi, ungra jafnt sem aldinna, feitra og mjóa, kalla og kellinga, töffara og lúða....
Myndin er sýnd í Háskólabíói og bara í nokkra daga í viðbót, þannig að þið verðið að skella ykkur á hana sam allra fyrst!
Góða skemmtun!
Eins og mörg ykkar vita tókum við 100% lán fyrir íbúðinni okkar, það margrómaða ár 2007. Ekki af því að við værum í neysluæði heldur af því að okkur reiknaðist til að við gætum greitt lánið frekar hratt niður - og við keyptum " bara" 3 herbergja íbúð en ekki raðhús eins og bankinn vildi lána okkur fyrir!
En hvað um það, kreppan kom og verðtryggingin margrómaða og verðbólgan yndislega hafa gert lánið að rúllandi snjóbolta sem verður bara stærri og stærri. Við höfum, þrátt fyrir kreppu, getað staðið við það sem við settum okkur þ.e. að greiða myndarlega inn á höfuðstól lánsins um hver mánaðarmót.
Við erum víst ekki þau einu sem hafa lent í þessu og því býður bankinn nú "leiðréttingu" á láninu, þ.e. að afskrifa allt umfram 110% veðsetningu. Ég hafði samband við bankann; veðsetningin á íbúðinni okkar er aðeins yfir 110% og því getum við fengið svolitla leiðréttingu, en það er flott orð yfir afskriftir.
Kaldhæðnin felst í því að hefðum við ekki lagt allt kapp á það undanfarin ár að borga aukalega inn á höfuðstól lánsins, fengjum við það nú allt afskrifað. Þannig að samviskusöm sem við erum höfum við notað aukaaurana í að styrkja Arion-banka þegar við hefðum átt að kaupa okkur nýjan bíl, nýtt eldhús og utanlandsferðir (við höfum í alvöru greitt svo mikið inn á höfuðstólinn að það myndi duga fyrir þessu....).
Og þó ég barmi mér hér yfir óréttlætinu verð ég að taka fram að við  lendum ekki jafn illa í því og þeir sem áttu eitthvað í íbúðunum sínum, þ.e. voru kannski með 80% lán en eiga núna ekkert þar sem lánið hefur hækkað mikið og íbúðarverðið lækkar. Það fólk fær engar leiðréttingar, það átti allavegana eitthvað í íbúðunum sínum. Við áttum aldrei neitt nema nokkrar krónur....og í öllum þessum dæmum er öfug snúið og borga og borga en eiga samt aldrei neitt!
Það kom að því....elskulegi gemsinn minn bilaði og hefur nú verið tekinn úr þjónustu. Hann tók bara allt í einu upp á því að vera með hrikalega skruðninga og læti og því ekkert hægt að hringjast á því það heyrðist ekkert! Ég lagði því leið mína í ELKO og keypti ódýrasta símann sem ég fann, tæpur 7000 kall. Það er hægt að hringja í mig, senda mér hefðbundið sms og svo er hann með vekjaraklukku- en það er einmitt allt sem ég þarf!
Gamli síminn hafði þjónað mér vel í fjögur og hálft ár, sem verður að teljast nokkuð góð ending á tímum ódýrra og einnota raftækja. Það slær samt ekki hinum gemsanum (já, ég hef bara átt tvo gemsa!) út- Nokia 3210, hann entist í allavegana 5 ár! Blessuð sé minning hans (og það eru sko margar minningar tengdar honum- hver ma ekki eftir sólblóma"frontinum" góða!?!?)
Þannig að ef þið sjáið mig hrikalega viðutan að reyna hringja eða senda sms- þá er það ég að reyna læra á nýja símann. Og ef það er einhversstaðar sími að hringja sem enginn svarar- þá er það líklega minn- það tekur tíma að venjast nýrri hringinu þegar maður er búin að vera með þá sömu í rúm fjögur ár!
Ég hef nú oft skrifað gullkorn barnanna sem ég kenni hérna á bloggið. Í dag mismælti ég mig allsvakalega og samstarfskonur mínar lögðu til að þetta yrði skráð eins og önnur gullkorn....
Ég var að lesa fyrir börnin um hann Pottaskefil. Til þess að skerpa athyglina hjá sumum börnunum getur verið gott að varpa fram spurningum svona inn á milli.
Kolla: Krakkar, haldið þið að hann Pottaskefill verði ekki graður þegar hann....
Börnin: Kolla, þú sagðir graður, hvað þýðir það?
Kolla: eh, um, svona eins og graðhestar!
Börnin: Kolla, afhverju hlæjið þið fóstrurnar svona mikið?
Kolla: eh, hún var að hvísla að mér brandara
Börnin: oh, viltu segja okkur líka!?!?
Mér til málsbóta verður að segjast að -r og -l eru mjög skyld hljóð, svona framburðarlega séð, enda ætlaði ég auðvitað að segja að jólasveinninn yrði glaður....